Stúdentar í Stokkhólmi

Studenter i Stockholm

Gestabók

13.10.2011 kl. 7:52

Hejhej

Ha nu hittade vi din blogg!

Håkan, Marcus och Yuet-Yan

www.fansOfJimmyLarsson.com

14.2.2011 kl. 12:48

Vetrarhörkur

Það er aldeilis búinn að vera mikill vetur hjá ykkur í Stokkhólmi, endalaust frost og mikill snjór. En þið hafið bara notað þetta og verið dugleg að fara á skíði og skauta. Gott mál!

Kv Pabbi.

Bjarki Þórarinsson

teddyfrimann.123.is

29.10.2010 kl. 12:55

Jii hvað hún frænka þín er mikið krútt :D

Alltaf gaman að skoða myndirnar og lesa fréttirnar af ykkur hjúunum :o)

kv

Birna

Birna

22.8.2010 kl. 21:59

Fossinn

Hæ myndin af fossinun sem þið segist ekki muna hvað heitir hefur ekkert nafn en kallaður Rudolf (er í Markarfljóti) en hinn sem er við Hólaskjól hefur ekkert nafn.
kveðja úr sveitinni

mamma

20.3.2010 kl. 14:09

ömmu rabb

Elsku Frímann Viðar og Theódóra mikið er gaman að skoða myndirnar ykkar og sjá og heyra hvað ykkur líður vel og allt gengur vel, mamma þín er búin að sína mér hvernig að ég á að bera mig eftir björginni, afi er í Skógum að hjálpa Einari Viðari að setja upp eldhúsinnréttingu fyrir Sverrir og Möggu annars gengur lífið sinn vana gang við fórum á canarý 17-3 marssól allan tíman Sigga amma fór með okkur ferðin heppnaðist í alla staði vel kær kveðja amma

Jóna amma

19.3.2010 kl. 17:07

Halló

er að sýna mömmu hvernig á að senda til ykkar :)

Katrín Birna

14.10.2009 kl. 22:45

Kveðja frá PABBA

Vona, Teddý mín, að þú og Frímanni hafið það gott á "Maríustöðum" í Stokkhólmi.

Bjarki Þórarinns

teddýfrimann.123.is

6.8.2009 kl. 2:06

VÁÁÁ .. magnaðar myndir !!!

Heil og sæl og takk kærlega fyrir samveruna í Norðurfirði... Magnaðar myndir hjá þér Frímann. Náttúruperlan Ísland stendur fyrir sínu. Hlakka til næstu ferðar ;o)

Sigrún Anna

31.10.2008 kl. 12:39

Halló :)
Sá tengil á þessa síðu hjá Evu og Lalla! Öfunda ykkur nú smá að vera í Stockholmi! Fór þangað í vor og heillaðist algjörlega, yndisleg borg! Vona að þið hafið það sem allra allra best, bestu kveðjur frá okkur Ottó

Elfa Birkis

2.10.2008 kl. 22:40

Korn og snjór!

Halló krakkar mínir, fréttir að heiman!
Kornið komið í hlöðu ,síðustu kornin kominn inn kl: 22:01 og svo viti menn kl: 22:35 byrjað að snjóa og allur hálmur órúllaður!
Jæja hafið það sem best .
Bestur kveðjur ,mamma og allir á Ásólfsskála.

Katrín Birna

2.9.2008 kl. 12:58

Gott að allt gengur vel

Hæ hæ. Vorum að skoða myndina af Margréti og Frímanni á síðunni áðan, og fylgjumst að sjálfsögðu með ykkur hérna. Gaman að því. Gangi ykkur sem best. Kveðjur frá okkur öllum á Miðtúni.

Sigga og co Miðtúni

31.8.2008 kl. 22:12

Hæ, hæ

Gaman að sjá að þið eruð búinn að koma ykkur vel fyrir, gangi ykkur allt í haginn.
Kv. Vigfús og co.

Vigfús Ingvarsson

31.8.2008 kl. 12:13

Hæ nemar í Svíaríki

Hæ, gangi ykkur sem allra best í náminu úti, gaman að sjá myndirnar hjá ykkur.
Ef þið hafið lausa stund þá birtast stundum myndir á síðunni hennar Sóldísar á Barnalandi, lykilorðið er snulli Kveðja af klakanum
Fjóla frænka

Fjóla frænka

soldislara.barnaland.is

28.8.2008 kl. 9:13

Gott gengi

Sælir "svíar" nú er mamma og tengdó ykkar búin að auglýsa síðuna ykkar - svo nú er eins gott að skrifa ekkert nema fallegt um Skálakots-stórfjölskylduna :) Gangi ykkur sem allra best.

kv.

FÓ og co

Freyr og co

27.8.2008 kl. 19:19

handbolta-uppsetningarhátíð(vá langt orð!)

hæhæ!
núna er skólinn byrjaður :(
en vonandi er gaman hjá ykkur í svísjóð!
komum heim frá köben í gær það var rosa gaman þar.
kv, melkroka
p.s. í sambandi við hanboltauppsetningarhátíð þá er sérstök útihátið tileinkað "Strákanna okkar" af því þeir fengu ólimpíusilfur í handbolta ef þið vissuð það ekki.
endilega kíkja á mína síðu!

Melkorka

www.melkitty.blogcentral.is

26.8.2008 kl. 9:30

Til hamingju með íbúðina. Það verður gaman að fylgjast með ykkur hérna.

Berglind og Einar

22.8.2008 kl. 23:00

Gaman að þessu

Þetta lítur vel út hjá ykkur. Að sjálfsögðu eruð þið búin að fara í gulu rútina í IKEA. Líst vel á sjónvarpið ykkar.
Þegar ég sé allt þetta hjá ykkur kemur bara fiðringur í mig að flytja aftur í nýja borg.

Kærar kveðjur frá hinu meginlandinu og nei, þú ert ekki enn orðin frænka!

Egill & Ania

17.8.2008 kl. 11:10

Til hamingju

Hæ og gaman að fylgjast með ykkur á svona bloggi,til hamingju með íbúðina og að vera komin til Svíaríkis, vonandi fer bara vel um ykkur þarna, það er aldrei að vita nema maður kíki einhverntíman til ykkar og fái að gista í stofunni hehehe.
En venlig hilsen,ég fylgist með. kv. Ásdís

Ásdís

16.8.2008 kl. 17:37

Hæ elskurnar

hæ og til hamingju með þennan glæsilega leigusamning hehe. Þarf að redda þessu með SKÆB! he he !tjá! heyrumst sem fyrst kv Ævar

Ævar Sigurðsson

16.8.2008 kl. 10:15

Til hamingju með íbúðina.


Flott íbúð! eldúsið er fínt.
verður þetta ykkar rúm? (það verður svolítið skrítið að vakna á morgnana).

Þorgeir Sigurðsson

14.8.2008 kl. 21:17

Gangi ykkur vel

Hej alla! Gangi ykkur allt í haginn í Svíaríki. Við hlökkum til að fylgjast með ykkur,
Varma hälsningar, Kristin

Kristín Geirsdóttir

Flettingar í dag: 24
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 29
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 76998
Samtals gestir: 18539
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:17:03

Vafraðu um









Símanúmer

Frímann: +46 7 656 712 15
Theódóra: +46 7 656 712 74

Tenglar