Hejsan!
Það er ýmislegt búið að vera á döfinni hérna síðan síðast. Hið vikulega bandý þar sem reyndar hið leiðindaóhapp gerðist strax á fyrstu mínútunni að ein stelpan tognaði mjög illa. Á laugardagskvöldið var okkur Frímanni boðið í alíslenskt matarboð sem við kusum reyndar að kalla hreinlega þorrablót þar sem boðið var uppá íslenskt hangikjöt, uppstúf, ORA grænar baunir, flatkökur, laufabrauð og að sjálfsögðu var byrjað á að skála í rammíslenskt brennivín. Daginn eftir ákváðum við Frímann að halda áfram með þorrann og elduðum okkur íslenskt slátur með kartöflumús. Í gær skellti ég mér síðan með nokkrum stelpum í Óperuna, við fórum að sjá Rakarann í Sevilla, gamanóperu eftir Rossini, sem var æðislega skemmtileg. Það er alltaf jafn gaman að fara í óperuna og þær eru allmargar sýningarnar hérna í Stokkhólmi sem mig langar að sjá. Á morgun verður svo hittingur hjá íslendingunum eða Onsdag eins og við kjósum að kalla það. Við Frímann erum svo að pæla í að fara í skíðaferð í Kungsberget um helgina en ekkert fast ákveðið ennþá.
Hälsningar