Hej allihopa!
Kíkti á jólamarkað með tveimur vinkonum mínum hérna í stokkhólmi. Þetta er stærsti jólamarkaðurinn í Stokkhólmi og er staðsettur á Skansen safninu. Það var rosalega kósy og jóló stemning þarna en við hvíldum okkur aðeins á skólabókunum þennan yndislega fallega laugardag og kíktum þarna við. Það var sól, kalt og algjör stilla og lyktin í loftinu var svo jólaleg, jólagreni, ristaðar möndlur, kanell, vöfflur, jólaglögg... mmm....Það var mikið um fallegt handverk þarna en svíar eru mikið fyrir að gera listaverk úr hálmi og gleri (en ekki saman þó :). Þegar ég steig síðan út úr lestinni heima byrjaði þessi líka fallega jólasnjókoma, toppaði algjörlega stemninguna.
Hej då

Þessi jólahestur var á Skansen