Stúdentar í Stokkhólmi

Studenter i Stockholm

Blogg

Stúdentar í Stokkhólmi

29.11.2009

Fyrsti í aðventu

Hejsan!

Í dag verður íbúðin og jólatréð skreytt með tilheyrandi jólatónlist, piparkökum, mandarínum og mjólk. Við erum að komast í hátíðarskap hérna á Marístöðum en það vantar herslumuninn uppá, þeas jólasnjóinn. Sá á mbl áðan jólasnjóinn í Reykjavík, öfunda ykkur dálítið þarna heima að hafa svona jólalegt á aðventunni. Annars gaf ég Frímanni afmælisgjöf í gær, þó hann eigi nú ekki afmæli alveg strax. Honum langaði svo í jakka og það var 20% afsláttur af öllum jökkum þannig að við skelltum okkur bara á einn í H&M, rosa flottur... flottur jakki .... babb.. babb. babbb....eins og Raggi Bjarna myndi segja. Við erum því orðin algjör tískudýr hérna í flíkum frá H&M, Ginu Tricot og hvað þetta heitir allt saman. Set hérna mynd af nýja stílnum okkar.

hej då


Nýr stíll

Skrifað 29.11.2009 kl. 11:16 af Theódóru

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.11.2009

Ich glaube ich bin ein Berliner ...

hejsan!

Núna erum við komin frá að ég held allavegana síðustu berlínar ferðinni þetta árið, og hún var sú sjötta á þessu ári. Það er ómetanlegt að fara svona til berlínar reglulega og hitta litlu famelíuna, leika við Ingu og slappa af. Frímann þurfti að læra mikið þessa helgi þannig að hann varð eftir heima á meðan við hin fórum niðrí bæ að skoða hitt og þetta. Við fórum samt bæði í klippingu þarna úti sem var það mikið ódýrara heldur en í svíþjóð að það borgar sig að fljúga til berínar til þess að fara í klippingu! Eigandinn var með hundinn sinn með sér sem var lítill svona bulldog eins og í "man and black" myndinni. Hundurinn var næstum því búinn að bíta í gegnum skóinn minn eftir klippinguna og rífa reimarnar af skónum hans Egils. Annars kíktum meðal annars á checkpoint charlie, neðanjarðarbyrgið þar sem Hitler var síðustu daga lífs síns og fórum í verslunarleiðangur í C&A. Næsta ferðalag hjá okkur núna er Ísland þar sem öll famelían kemur loksins saman í einu landi.
Hej då


Í garðinum hjá rétt hjá Edelweisstrasse

Skrifað 23.11.2009 kl. 10:56 af Theódóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

11.11.2009

MUSE píanóspil

Hejsan!

Var að leika mér á píanóinu með því að nota record takkann. Tek upp tvívegis og spila með upptökunni þannig að lagið verður í raun sex hent. Skellti inn einu myndbandi með MUSE lagi sem ég nota þessa fúnktion í píanóinu.

tja!

Skrifað 11.11.2009 kl. 19:19 af Theódóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.11.2009

Berlín

Hejsan!
Skelltum okkur í afslöppunarferð til Berlínar um helgina. Það er alltaf jafn skemmtilegt að fara þarna suðureftir og hitta litlu famelíuna. Við slöppuðum nú aðallega af en gerðum samt ýmislegt, fórum t.d. með Ingu í söngtíma og barnasund, fórum niðrí bæ og Egill keypti ryksugu (sem Inga elskar í augnablikinu), fórum á tæknisafnið Spectrum en skemmtilegast var auðvitað bara að hanga heima og leika við Ingu. Aldrei fáum við nóg af Berlín því stefnan er tekin aftur þangað seinna í þessum mánuði, ég ætti að farað fá magnafslátt hjá Ryanair :). Myndir úr ferðinni í Myndaalbúminu OG nýtt myndband.

Hejdå!

Skrifað 9.11.2009 kl. 14:50 af Theódóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

1.11.2009

Hrekkjavaka

Tja!

Það var nú algjör skyndiákvörðun að halda þetta Hrekkjavökupartý í gær, stelpunum langaði svo að klæða sig í búninga þannig að ég reddaði bara partýinu. Ég steingleymdi að setja miða til að vara nágrannan við og klukkan var ekki orðin mikið meira en hálf eitt þegar þeir kíktu niður til okkar til skamma okkur, það fyndna var samt að hann var aðallega að skamma okkur að hafa ekki sett miða til að vara við... þessir svíar. Þrátt fyrir þessa truflun gekk partýið mjög vel og var mikið fjör hjá okkur, ég var búin að dressa íbúðina upp og var með appelsínugult þema, lit hrekkjavökunnar. Hafði sett appelsínugulan pappír fyrir ljósin og klippti út grasker sem var skuggamynd á einu ljósinu, mjög töff. Ég var í smá vandræðum með að finna búning, ætlaði að gera eitthvað sem kostaði ekkert auka... fékk svo þessa frábæru hugmynd að vera Grýlurnar þegar þær voru að syngja í Atlavík í Stuðmannamyndinni, það kom bara mjög vel út. Næstum allir krakkarnir mættu í einhverjum búning og það var mikið fjör að finna út hver væri hvað. Annars þarf ég að vera dugleg að læra núna því um næstu helgi ætlum við að skreppa til Berlínar og kíkja á litlu famelíuna þar.

Hej hej!

Skrifað 1.11.2009 kl. 7:59 af Theódóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 15
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 56
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 30523
Samtals gestir: 6831
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 21:22:23

Vafraðu um









Símanúmer

Frímann: +46 7 656 712 15
Theódóra: +46 7 656 712 74

Tenglar