|
Stúdentar í Stokkhólmi Studenter i Stockholm |
|
BloggStúdentar í Stokkhólmi 30.6.2009Fjallagarpar á HornströndumHeil og sæl Um helgina fórum við í gönguferð með Helgu og Dodda. Þetta var rosalega vel heppnuð ferð til Hornbjargsvita (á Hornströndum) þar sem veðrið lék aldeilis við okkur. Ferðin hófst á því að við keyrðum frá Reykjavík til Norðurfjarðar og gistum þar eina nótt. Snemma föstudagsmorgun var síðan tekin bátur til Látravíkur þar sem við gistum í Hornbjargsvita 3 nætur. Út frá Hornbjargsvita fórum við síðan í daggönguferðir á hverjum degi. Á föstudeginum sjáfum tókum við stutta göngu upp Kýrskarðið til að kíkja yfir í Hornvíkina, það var ótrúlega sýn að klífa skarðið og horfa síðan yfir víkina. Allir dagar hófust síðan á því að Kýrskarðið var klifið en á öðrum degi vor tvö fjöll sigruð, fyrst Hestur og síðan Kálfatindar. Það var mikið uppí mót þennan dag og endaði þessi dagur í 10 tíma göngu. Síðasti dagurinn var 8 tíma gönguferð sem hófst að venju á Kýrskarði, síðan vaðið yfir Vatnið (sem var ííískalt) og fjörganga í Hornvík. Heimleiðin þennan dag lá um Almenningaskarð og endaði í ískaldri þoku síðustu metrana heim. Samtals gengum við um 45 km og hækkuðum okkur allt í allt um 3 km. Það var alltaf þoka í látravíkinni en um leið og komið var upp í Kýrskarð var sól og blíða og brunnum við eins og svín eins og sönnum Íslendingum ber að gera. Ekki skemmdi svo fyrir hvað hjónina í vitanum, Ævar og Una, voru æðisleg, mæli sko sannarlega með Hornbjargsvita (www.ovissuferdir.net). kveðjur
12.6.2009Nýr ísskápurTjena! Nýji ísskápurinn kom í dag kl 13. Það var einn roskinn karlmaður og annar aðeins yngri sem sáu bæði um að fjarlægja gamla og setja nýja upp. Þegar þeir fjarlægðu gamla fórum við Hildur og þrifum undir ísskápnum áður en nýji kæmi... OMG hvað það var ógeðslega skítugt þarna og vitið hvað... það var könguló!!! Þær geta nú troðið sér alstaðar! Núna er ég rosalega ánægð að vera komin með nýjan ísskáp og veit að allavegana mun það ekki klikka á meðan ég verð á íslandi. Flugið er á morgun og ég lendi á klakanum um kaffileytið! Sjáumst! 10.6.2009Í köben... í köben... í kóngsins KöbenhavnHejsan! Já núna erum við Hildur komnar úr danska stelpuferðalaginu í annað (sænskt) stelpuferðalag, aðallega vegna þess að Frímann fór fyrr til Íslands en áætlað var. Það var rosalega gaman að hitta Svövu í köben og við bæði dönsuðum og gengum af okkur lappirnar gjörsamlega. Við skoðuðum að sjálfsögðu Kóngsins Nytorv, Strikið, Amelíuborg, Krisjánshöllina, Magasin du Nord (Nonnabúð), fórum reyndar ekki inní Tívólíið en að þessu sinni fórum við alla leið uppí DTU (háskólann) og skoðuðum þar líka. Á kvöldin var svo ærlega slett úr klaufunum, eða bærinn málaður rauður eins og pabbi hennar Svövu sagði alltaf. Eitt kvöldið dró Svava okkur, alveg hreint dauðþreytta eftir alsherjargöngutúr í Malmö, á Salsakvöld þar sem byrjað var á danskennslu og svo frjálstími, eða eiginlega bara djamm, á eftir, það var ekkert smá gaman og það getur vel verið að ég þrói þessar Salsadanshreyfingar meira. Þegar við komum aftur til stokkhólms lentum við í því að ískápurinn var bilaður, allt við 20°C og það sem mygla gat var sko myglað út í gegn. Það var því allt tekið út og þrifið og svo hringt í eigandann sem var ekki lengi að redda málunum og nýr ískápur kemur á föstudaginn. Í millitíðinni erum við Hildur bara nokkuð ánægðar með það að það sé bara 10°C hiti úti þannig að við getum verið með poka úti í glugga fyrir mjólkina. Með nýjan ískáp ætti Íbúðin að vera í fínasta lagi og líklega þola langa dvöl án notkunar á meðan við verðum á Íslandi. Hälsningar Ónýti ísskápurinn Bráðabirgða ísskápurinn 1.6.2009Í sól og sumaryl...Tjena!
Flettingar í dag: 33 Gestir í dag: 12 Flettingar í gær: 20 Gestir í gær: 11 Samtals flettingar: 30450 Samtals gestir: 6808 Tölur uppfærðar: 19.3.2010 17:51:57 |
Vafraðu umEldra efni Símanúmer Frímann: +46 7 656 712 15Theódóra: +46 7 656 712 74 Tenglar |