Stúdentar í Stokkhólmi

Studenter i Stockholm

Blogg

Stúdentar í Stokkhólmi

23.2.2009

BOLLA BOLLA BOLLA

Hejsan!

Bolludagur á Íslandi og að sjálfsögðu var dagurinn tekinn hátíðlega hér í Stokkhólmi. Ein stelpan hérna bauð sig fram að baka vatnsdeigsbollur og gera glassúrsúkkulaði og ég kom með rjóma og sultu og aðrir gestir komum með hitt og þetta. Við hittumst öll heima hjá undirrituðum og hans frú eftir skóla og gæddum okkur á þessum gómsætu bollum. Á morgun er svo FETtisdag hjá svíunum þar sem þeir gæða sér á bollum með rjóma og marsípani, kallað Semla, sem eru ekki jafngóðar og vatnsdeigbollurnar.  Ekkert meira um það að segja en myndin talar sínu máli .... mmmmmm

Skrifað 23.2.2009 kl. 18:18 af Theódóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.2.2009

Innflutningspartý á Maríustöðum

Tjena!

Í gærkvöldi héldum við fyrsta partýið okkar að Maríustöðum. Flest allir sem við þekkjum hérna mættu á svæðið og var mikið líf og fjör fram eftir kvöldi. Sumir félagar okkar gáfu okkur innflutningsgjafir og var ein frá sænskum vini okkar merkileg, það er nefnilega siður hér í Svíþjóð að gefa graut í innflutningsgjöf, núna erum við því með pott inní ískáp fullan af graut. Þetta er eitthvað svipað og á Íslandi á maður að fara með salt og brauð svo maður eigi alltaf nóg salt í grautinn þannig að Íslendingar gefa salt og svíar grautinn, hentugt. Við vorum mjög ánægð með hvað íbúðin rúmaði vel þennan fjölda af fólki en áður en partíhöldin byrjuðu tóku við í sundur bæði læriborðin okkar til að hafa meira pláss fyrir stóla. Eftir vel heppnað partý tók svo við næsti dagur, í dag, þar sem allt var þrifið hátt og lágt. Íbúðin fékk loksins alþrif og nú angar svoleiðis allt hérna í sápu og hreingerningalykt. En við tekur nú stífur lærdómur þar sem það styttist óðum í prófin, en þau eru í byrjun mars. Setti inn nokkrar myndir frá 'fest'-inni á Maríustöðum.

Adjö

Skrifað 22.2.2009 kl. 13:54 af Theódóru

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.2.2009

Jakob í hálfa öld


TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN Jakob og til hamingju með að vera að halda fyrstu málverkasýninguna þína.

Ég verð nú að viðurkenna það að ég man ekki eftir okkar fyrstu kynnum. Af einhverjum ástæðum tengi ég miklu betur minningar í gegnum bíla heldur en mannleg samskipti og ég gleymi aldrei Súkkunni sem Jakob átti þegar við vorum á Grandó. Maður fann það alveg hvað Jakob var náinn þessum bíl sem var engin furða þegar maður fer að hugsa um það. Það svipaði nefnilega doldið til þeirra; stuttur, kassaleg yfirbygging og fjórhjóladrifinn þannig að hann kemst allar ótroðnar slóðir. Mamma var samt ekki jafnhrifin af bílnum eins og eigandanum og var ekki lengi að telja Jakobi trú um að núna væri kominn tími til að fá sér nýjan og fínan bíl. Að sjálfsögðu þurfti bíllinn að vera með stórt skott, því ekki má gleyma því að golfsettið verður að passa án nokkurra vandræða í skottið. Silfurlitaður fyrrum tjónabíll af gerðinni Rav4 varð fyrir valinu og ég held að Jakob hafi aldrei verið nógu sáttur við hann, hann var bara ekki Súkkann. Ég man að lengi eftir að hann var búinn að kaupa Toyotuna var hann af og til að minnast á fjórhjóladrifnu Súkkuna, maður fær bara kökk í hálsinn. En Súkkan hafði ekki farið langt í þetta skiptið, bróðir hans fékk hann nefnilega. En jæja nú var komið að tímamótum í lífi Jakobs, Mamma og Jakob ætluðu að fjárfest í fasteign saman. Eftir að hafa skoðað nokkrar íbúðir enduðu þau á að fjárfesta í ítölsku höllinni í Árbænum, alveg gjörsamlega lengst í burtu að mér fannst í fyrstu. Nú hófst leit að nýjum bíl á þessum tímamótum, stærri og flottar að sjálfsögðu. Þegar maður býr í höll þýðir ekkert að vera á silfurlituðum toyota, þá dugir bara að vera á einhverju Amerísku eða sænsku. Mamma var ekki lengi að segja sínar kröfur: " hann þarf að vera með V6", jáhá mamma vildi fá að heyra almennilegt hljóð í vélinni að þessu sinni, ekkert 4-cylindra kjaftæði, bara V6. Eina sem Jakob vildi bara: fjórhjóladrif og rúmgott skott fyrir golfsettið. Núna kom tækifærið til að kaupa nýja Súkku, V6 Grand Vitara. Mig minnir að hún hafi alvarlega verið inní myndinni en að sjálfsögðu fannst mömmu Súkka nú ekki alveg passa við innkeyrsluna þannig að svartur Escape varð fyrir valinu. Ég á margar góðar minningar úr bílunum hans Jakobs eins og holótta Vestfjarðaferðin á Ravinum, ófáar golfferðir á Þorlákshöfn og skíðaferðir á Escape-inum og margt fleira.  

Ég vildi óska að ég gæti verið þarna með ykkur núna á þessum tímamótum en ég reyni að bæta það upp með þessum óvænta afmælispakka sem ég sendi þér.

Eigðu góðan dag, afmæliskveðjur frá Svíþjóð


 

Skrifað 19.2.2009 kl. 5:12 af Theódóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.2.2009

Skíðaferð til Romme

Hej  allihopa!

Í gær vöknuðum við eldsnemma (eða um 5 leytið) til þess að keyra í 3 tíma upp til Romme og skella okkur á skíði/bretti. Við vorum 7 saman sem fórum og höfðum við leigt svona minibuss til að ferja okkur norður. Þetta var alveg hreint æðislegt, veðrið lék við okkur, -8° frost og sól allan tímann, enginn vindur og alveg hreint fullkomið skíðaveður. Frímann var ekkert sérstaklega sáttur fyrst þegar hann fann enga stökkpalla til að leika sér á en svo í einni brekkunni leyndust nokkrir pallar á bak við tré sem hann gat leikið sér á og dottið og meitt sig og allt svoleiðis. Þetta var svipaður hópur og fór síðast en nú höfðu tveir aðrir skíðamenn bæst í hópinn. Engin alvarleg meiðsl urðu á neinum og voru allir mjög sáttir við góðan dag þegar haldið var heim á leið. Við vorum komin aftur í bæinn um kvöldmatarleytið og skutluðum við Frímann öllum heim og enduðum svo á að skila bílnum. Núna erum við búin að fara í tvær skíðaferðir hérna í Svíþjóð á sitthvort svæðið sem er í svona dagstúrafjarlægð frá Stokkhólmi, niðurstaðan var sú að skíðafólkinu fannst þessi staður skemmtilegri en brettafólkinu fannst Kungsberget skemmtilegra, en eitt veit ég þó fyrir víst að þetta var ekki síðasta skíðaferð hópsins.

Hej då

Skrifað 15.2.2009 kl. 9:51 af Theódóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

8.2.2009

Skóli og ekki skóli... og vöfflur

Tjena !

Það eru mjög ólíkir tímar hjá okkur Frímanni núna, algjörlega brjálað að gera í skólanum hans og frekar svona rólegt og þægilegt hjá mér... í augnablikinu. Eins og venjulega voru partý um helgina bæði mjög mikil skyndipartý þar sem hvorugt var bókað nema með nokkra klukkutíma fyrirvara. Partýin voru þar af leiðandi ekkert villt og tryllt heldur meira bara rólegheit og spjall þar sem vinir komu saman. Við áttum bókaðan þvottatíma á sunnudeginum kl 11 og að sjálfsögðu tókst okkur ekki að vakna fyrir þann tíma þannig að þvottavélarnar fóru ekki að snúast fyrr en um hádegið. Núna er sum sé þvottur gjörsamlega út um alla íbúð þar sem að öll handklæðin voru búin, bæði stóru og litlu, og flest fötin okkar voru öll orðin óhrein. Í tilefni þess að það er svo sunnudagur ákváðum við að fá okkur vöfflur í kaffinu. Frímann situr núna límdur við tölvuskjáinn að horfa á snjóbrettamyndbönd og lætur sig dreyma en það er bara vika þangað til við förum í skíðaferð tvö til Romme, hann er allur farinn að iða af spenningi.

Hej då

Skrifað 8.2.2009 kl. 15:23 af Theódóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.2.2009

Ísland um páskana

Hej allihopa!

Kæru vinir, ættingar og allir þeir sem ég þekki og lesa þessa síðu, stundin er komin að loksins loksins kem ég aftur á klakann eftir að hafa flutt hingað út 13.ágúst á síðasta ári. Við Frímann erum búin að kaupa okkur miða og förum við nú saman til Íslands, komum 3.apríl og förum aftur 14.apríl. Ég get ekki beðið að hitta alla, mest hlakka ég til að sjá hana Soffu frænku aftur. Núna er ég sum sé orðin ein af þeim sem þarf að bóka allt fríið mitt á íslandi til að hitta sem flesta. Við Frímann getum bara ekki verið kyrr því það er búið að bóka skíðaferð nr 2, núna til Romme, en það er fjall rétt hjá Kungsberget, þangað sem við fórum síðast. Set hér inn kort þannig að þið getið áttið ykkur á þessu. Það tekur um 2,5-3 tíma að keyra þangað og erum við búin að leigja 9 manna bíl. Við verðum 6-9 sem förum saman en það verður farið á lau eftir 1,5 viku. Svo ætlum við Frímann að halda partý viku seinna hérna á Maríustöðum, innflutningspartý sem hefur fengið mjög góðar undirtektir af félögum okkar hérna í stokkhólmi.

Tja!

Skrifað 3.2.2009 kl. 20:40 af Theódóru

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

2.2.2009

Afmæli og sunnudagssteik

"Hann á afmæl'í dag, hann á afmæl'í dag, hann á afmæl' hann pabbiiii ......,haaaann á afmæl'í daaaag!!!!! 

Til hamingju með afmæli elsku besti pabbi minn. Pakkinn sem þú fékkst ætti nú ekki að vekja mikla undrun en ég dúllaði mér smá við afmæliskortið. Vonandi er jafn gott verður hjá þér eins og hjá okkur, eftir ég veit ekki hvað marga mánuði ákvað loksins sólin að láta sjá sig og skýin að fara eitthvert annað. Þetta þýðir bara eitt, að ég verð gjörsamlega að fara í göngutúr í dag á meðan sólin er á lofti. Í gær var ákveðið að gera fyrstu sunnudagssteikina og urðu svínakótilettur fyrir valinu. Eins og venjulega þegar ákveðið er að hella sér út í tilraunaeldhús er byrjað á því að hafa samband við mömmu til að tékka hvernig hún gerir þetta. Þar sem að uppskrift mömmu hljómaði allt sem allt of mikil athöfn ákvað ég bara að krydda kótiletturnar og hafa brúnaðar kartöflur. Kótiletturnar heppnuðust með eindæmum vel en brúnuðu kartöflurnara klikkuðu eitthvað, en ekki misskilja samt þær brögðuðust alveg mjög vel en voru bara ekkert brúnar. Eftir kvöldmat voru við bæði sammála um að þetta væri ekki okkar síðasta sunnudagssteik hérna í Svíaríki.

Afmælis- og sólar kveðjur

hej då



Skrifað 2.2.2009 kl. 8:27 af Theódóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

1.2.2009

Skíðaferðalag - Kungsberget

God morgon!

Í gær fórum við í skíðaferðalag til Kungsberget. Við leigðum enn og aftur glæsilegan bíl, í þetta sinn var það 5 manna station bíll sem við tókum, Ford Focus eins og þið sjáið hér að neðan. Við vorum 5 sem fórum saman og tók það okkur um 2,5 tíma að keyra. Við vöknuðum eldsnemma (kl 6) um morguninn og lögðum af stað um 7 leytið. Ég keyrði alla leið uppeftir og svo skiptumst við Frímann á að keyra heim. Þegar við vorum að nálgast svæðið vorum við farin að örvænta þar sem ekkert fjall var í augsýn, við keyrum og keyrum í hálftíma og svo allt í einu kemur þetta fjall, bara uppúr þurru og er þarna beint fyrir framan okkur. 17 lyftur, 200m fallhæð og 1300m langar brautir, þetta var mjög fínt og ótrúlega gaman að fara á bretti aftur eftir sumarið. Þegar við komum heim vorum við ekki lengi að ákveða að fara aftur aðra ferð seinna í febrúar, í Romme sem er þarna á svipuðum slóðum. Getið kíkt á myndir í myndaablúminum.

Skrifað 1.2.2009 kl. 10:07 af Theódóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 51
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 35
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 30503
Samtals gestir: 6820
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 19:24:59

Vafraðu um









Símanúmer

Frímann: +46 7 656 712 15
Theódóra: +46 7 656 712 74

Tenglar