Stúdentar í Stokkhólmi

Studenter i Stockholm

Blogg

Stúdentar í Stokkhólmi

14.3.2010

Vorið er að reyna að byrja

Hej!

Hér er búið að vera sól og ca +4°C alla vikuna, vorið er aðeins farið að líta dagsins ljós en það er samt ennþá næturfrost. Allur þessi snjór er að byrja að bráðna þannig að nú er allt á floti á götum borgarinnar. Næsta vika er prófavika í KTH eða svokölluð 'tentavecka' þannig við Frímann sitjum nú inni og lærum á meðan sólin skín fyrir utan gluggann. Eftir mánuð hjá Scania er ég strax komin með leið á þessu mikla ferðalagi sem ég þarf að leggja á mig á hverjum degi og dreymir um bíl á hverjum morgni. Annars er nú lítið að frétta héðan af Maríustöðum, næstu helgi verða reyndar Berlínarhelgi hjá mér á meðan Frímann tekur á móti vini sínum sem er að farað koma í heimsókn til Stokkhólms.

Hej då


Fórum í göngtúr í skóginum og fundum þessi Harry Potter-legu tré

Skrifað 14.3.2010 kl. 7:32 af Theódóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

6.3.2010

Fallegt vetrarveður alla daga

Hejsan!

Nú er ég búin að vera í 3 vikur í Scania að lesa greinar og veit orðið ansi margt sem tengist brennsluhljóðinu í dísel vélum, mjög gaman af því. Um síðustu helgi kom í fyrsta sinn í marga mánuði plús gráður en það endist nú ekki lengi þar sem mánudagsmorguninn tók á móti manni með þvílíkri snjókomu og -8°C frosti. Veturinn er enn í fullum gangi hér í Stokkhólmi en veðrið er samt rosalega fallegt alltaf, sól, logn, snjór og ískallt. Í dag skelltum við okkur á skauta í fallega veðrinu, prófuðum í fyrsta sinn alvöru íshokkísvellið sem er opið almenningi einstaka sinnum en það er staðsett við hliðiná stóra svellinu "mínu", við vorum svo óvön svona fínu slípuðu svelli að okkur fannst það næstum því óþægilega slétt þannig við héldum okkur bara við stóra (ekki svo vel slípaða) svellið. Svo eru íslensku krakkarnir alltaf duglegir að hittast en í kvöld verður afmælisveisla hjá einum.

Hej hej


Skrifað 6.3.2010 kl. 14:23 af Theódóru

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.2.2010

Íshokkí

Hej allihopa!

Við skelltum okkur nokkur saman á íshokkíleik um helgina. Stemningin var gígantísk og leikurinn mjög spennandi allan tímann. Liðin sem voru að keppa heita Djurgården og Södertälje en þetta var á heimavelli Djurgården og því mikil stemning þegar það lið vann einmitt leikinn. Eftir leikinn var svo inn- og útflutningspartý sem við skelltum okkur í þar sem við dönsuðum og skemmtum okkur langt frameftir. Setti inn bæði myndir og video af leiknum en það sem mér fannst einna merkilegast á þessum íshokkíleik var að þegar Djurgården skoraði mark þá var jólalagið "jingle bells" spilað með einhverjum "áfram djurgården" texta, þið heyrið þetta í lok myndbandsins.... "jingle bells, jingle bells, jingle all the way, oh what it is to ride in a horse open sleigh... hey.... ! " :) 

Hej då


Mætt í Hovet á DIF vs. SIK

Skrifað 28.2.2010 kl. 10:38 af Theódóru

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.2.2010

Kuldaboli

Hej
Það heldur áfram að vera kalt hérna í Stokkhólmi, í morgun var -22°C og lestarnar lágu allar niðri. Ég hélt mér því bara heima í dag og lærði. Þegar á leið daginn hlýnaði nú aðeins (varð -15°C) og ég ákvað þá að skella mér á skauta. Svellið var nýskafað og veðrið var mjög fallegt þrátt fyrir kuldann, sól og heiðskýrt. Á leiðinni sá ég troðfulla strætóa keyra framhjá að flytja fólk á milli, svokallaðir ersättningsbussar sem keyra á milli lestarstöðva þegar þær ganga ekki, og mér var mikið létt að hafa ekki þurft að standa í þessu í dag, alla leið uppí Södertälje. Á meðan ég sat við lestur hérna heima var mikið líf fyrir utan, bambar og hérar kíktu í heimsókn en maður getur ekki annað en vorkennt grey dýrunum að þurfa að vera í svona fimbulkulda. Það rifjaðist upp fyrir mér þegar við Soffa frænka vorum að gefa litlu fuglunum fuglafóður á köldum vetrardögum í gamla daga, ég fór því og braut niður nokkra brauðenda og henti út með von um að fuglarnir og öll hin dýrin muni njóta góðs af. SMHI (sænska veðurstofa) er svo að reyna að spá aðeins vægara frosti næstu daga, bara -3°C, vonandi verða bara lestarnar farnar að ganga sem fyrst.

Hej hej!


bambi að reyna að fóta sig í öllum snjónum

Skrifað 22.2.2010 kl. 15:32 af Theódóru

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 31
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 30558
Samtals gestir: 6844
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 14:19:02

Vafraðu um









Símanúmer

Frímann: +46 7 656 712 15
Theódóra: +46 7 656 712 74

Tenglar